Lærum og leikum - Allt vs Georg og félagar Usage & Stats

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga - Hrós veitt reglulega í forritinu - Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu - Foreldravörn aukin -Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu - Stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - Skráning athugasemda inni í forritinu - Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar. - Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna - Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar - Engar auglýsingar Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu. Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið. Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is
  • Apple App Store
  • Free
  • Education

Store Rank

- -

Georg og félagar eru mættir til leiks í fræðandi og skemmtilegum leik. Lærðu alla 32 íslensku bókstafina og tölustafi frá 1-10 á skemmtilegan og gagnvirkan hátt. Hvaða hlutur eða dýr eiga hvaða staf? Kanntu að telja upp í á 10? Smelltu þig í gegnum leikinn og sjáðu hvernig orðin lifna við. Það er leikur að læra með Georg og félögum. Georg and friends are here in an educating and fun game for preschoolers. Learn all 32 letters of the Icelandic alphabet and numbers from 1-10 in a colorful and interactive way. What object or animal belongs to what letter? Can you count to 10? Click trough each letter and see how the words come alive. It’s fun to learn with Georg and friends.
  • Apple App Store
  • Free
  • Education

Store Rank

- -

Lærum og leikum - Allt vs. Georg og félagar ranking comparison

Compare Lærum og leikum - Allt ranking trend in the past 28 days vs. Georg og félagar

Rank

No Data Available

Lærum og leikum - Allt vs. Georg og félagar ranking by country comparison

Compare Lærum og leikum - Allt ranking trend in the past 28 days vs. Georg og félagar

No Data to Display

Compare to any site with our free trial

Get started
Lærum og leikum - Allt VS.
Georg og félagar

December 23, 2024