Karellen 对比 Lærum og leikum - Allt 的使用情况和统计数据

Ókeypis app sem tengist Karellen, rekstrarkerfi fyrir leikskóla. Til að nota appið þarf aðgangsupplýsingar frá leikskóla sem notar kerfið. Appið er fyrir foreldra leikskólabarna og kennara. Appið auðveldar yfirsýn yfir dagskrá barnsins í skólanum. Þar birtist matseðill vikunnar, dagatal skólans og myndir af barninu í starfi og leik. Kennarar nota appið til að skrá viðveru barna í skólanum, senda foreldrum bein skilaboð, taka myndir af börnunum í skólanum og merkja hvaða börn birtast á myndinni. Foreldrar nota appið til að skrá barn veikt eða í fríi, til að senda skilaboð til kennara og til að skoða myndir af barninu. Þegar kennari tekur mynd með appinu og merkir þá fer myndin beint í app foreldra. Free app provided by Karellen, an operation system for preschools. The app needs login information to access the data from the school. The app is for parents and teachers to facilitate communication between the school and the home. In the app, the calendar of the school and the menu of the week are visible in addition to pictures taken of the childs activity in the school. The teacher uses the app to register school attendance and to send direct messages to the parents. Additionally the teachers can take pictures in the app and mark the names of the children appearing in each picture. The parents immediately receive the picture in their app. They can also mark the child being absent or sick the next day or coming days and they can send direct messages to the teachers.
  • Apple 应用商店
  • 免费
  • 教育

商店排名

- -

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga - Hrós veitt reglulega í forritinu - Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu - Foreldravörn aukin -Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu - Stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - Skráning athugasemda inni í forritinu - Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar. - Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna - Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar - Engar auglýsingar Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu. Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið. Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is
  • Apple 应用商店
  • 免费
  • 教育

商店排名

- -

Karellen与Lærum og leikum - Allt排名比较

对比 Karellen 与 Lærum og leikum - Allt 在过去 28 天内的排名趋势

排名

没有可用的数据

Karellen 对比 Lærum og leikum - Allt 的排名,按国家/地区比较

对比 Karellen 与 Lærum og leikum - Allt 在过去 28 天内的排名趋势

无数据可显示

通过免费试用版比较任何网站

开始使用
Karellen VS.
Lærum og leikum - Allt

十二月 28, 2024